Forsíða
3.5 Stærðir sjóðsins

Líf­eyr­ir

Sjóðfélagar afla sér réttinda til eftirlauna sem og makalífeyris, barnalífeyris og örorkulífeyris með greiðslu iðgjalda.

Deild­ir Brú­ar líf­eyr­is­sjóðs

Sjóðfélögum í A og V deild er heimilt að hefja töku eftirlauna á milli 60 og 80 ára aldurs.

Sjóðfélagar B deildar sem eru orðnir 65 ára og hafa látið af störfum hjá sveitarfélagi eða stofnunum þess geta hafið töku lífeyris. Lífeyristaka getur hafist fyrr ef sjóðfélagi hefur náð 95 ára reglunni.

Sjóðfélagi sem á rétt á lífeyri sækir um hann til þess sjóðs sem iðgjöld voru greidd til síðast.

A deildaðild starfsfólks sveitarfélaga
V deilder öllum opin
B deildsjö réttindasöfn lokaðra lífeyrissjóða

Líf­eyr­is­greiðsl­ur

eft­ir deild­um árið 2021

Með­al­ald­ur

Meðalaldur lífeyrisþega eftir tegund lífeyris árið 2021.

Eftirlaunaþegar72,6ára
Örorkulífeyrisþegar51,5ára
Makalífeyrisþegar74,7ára
Barnalífeyrisþegar13,3ára

Teg­und líf­eyr­is

Ellilífeyrir er greiddur til æviloka í öllum deildum.

Makalífeyri í A deild er greiddur til fimm ára eða þar til yngsta barn nær 22 ára aldri. Í V deild er makalífeyrir greiddur til tveggja ára eða þar til yngsta barn nær 18 ára aldri. Í B deild greiðist makalífeyrir ævilangt.

Barnalífeyri er greiddur uns barn verður 22 ára í A deild en 18 ára í V og B deild.

Örorkulífeyrir tekur mið af áunnum réttindum og miðast að lágmarki við 40% örorkumat í A deild, 50% örorkumat í V deild og 10% örorkumat í B deild.

Eftirlaun eru greidd til æviloka í öllum deildum

Fjöldi líf­eyr­is­þega

eft­ir teg­und líf­eyr­is (með­al­tal árs­ins)

Lífeyrisþegar sem fá greiddan ellilífeyri eru 64,8% af heildarfjölda lífeyrisþega og hefur hlutfallið haldist nokkuð óbreytt undanfarin ár.

Fæð­ing­ar­ár líf­eyr­is­þega
A deild

fjöldi í lok árs

Fæð­ing­ar­ár líf­eyr­is­þega
V deild

fjöldi í lok árs

Fæð­ing­ar­ár líf­eyr­is­þega
B deild

fjöldi í lok árs
*Fáir barnalífeyrisþegar eru í B deild.