Forsíða
3.4 Stærðir sjóðsins

Ið­gjöld

Iðgjöld veita réttindi til eftirlauna og áfallatrygginga.

Iðgjöld eru greidd til A og V deildar sjóðsins af heildarlaunum en eru almennt greidd af dagvinnulaunum í B deild. Réttindi sjóðfélaga í B deild eru tryggð með bakábyrgð launagreiðanda.

Iðgjald í A deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5%.

Iðgjald í V deild er 12,0-15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er annað hvort 11,5% eða 8,0%.

Iðgjald í B deild er 12,0% af dagvinnulaunum og eftir atvikum af vaktaálagi og orlofs- og persónuuppbót. Ekki er greitt iðgjald af yfirvinnu. Hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 8,0%.

Við breytingu á A deild árið 2017 var innheimt framlag í lífeyrisaukasjóð frá launagreiðendum en honum er ætlað að standa undir jafnri ávinnslu réttinda hjá sjóðfélögum.

Lagabreytingar höfðu áhrif á A deild á árinu 2017

Ið­gjalda­greiðsl­ur

eft­ir deild­um árið 2021

Með­al­ald­ur

Meðalaldur virkra sjóðfélaga eftir deildum á árinu 2021.

A deild36,4ára
V deild39,5ára
B deild61,4ára

Launa­greið­end­ur

tíu stærstu (fjár­hæð­ir í m.kr.)
Launagreiðendur2021Hlutfall
1Reykjavíkurborg6.07333,2%
2Kópavogsbær1.5068,2%
3Hafnarfjarðarkaupstaður1.0635,8%
4Akureyrarbær7924,3%
5Garðabær6163,4%
6Reykjanesbær5653,1%
7Mosfellsbær4942,7%
8Sveitarfélagið Árborg4602,5%
9Strætó bs.3061,7%
10Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs2651,4%
Aðrir6.15633,6%
Samtals18.296