Lífeyrir
Sjóðfélagar afla sér réttinda til eftirlauna sem og makalífeyris, barnalífeyris og örorkulífeyris með greiðslu iðgjalda.
Deildir Brúar lífeyrissjóðs
Sjóðfélögum í A og V deild er heimilt að hefja töku eftirlauna á milli 60 og 80 ára aldurs.
Sjóðfélagar B deildar sem eru orðnir 65 ára og hafa látið af störfum hjá sveitarfélagi eða stofnunum þess geta hafið töku lífeyris. Lífeyristaka getur hafist fyrr ef sjóðfélagi hefur náð 95 ára reglunni.
Sjóðfélagi sem á rétt á lífeyri sækir um hann til þess sjóðs sem iðgjöld voru greidd til síðast.
Lífeyrisgreiðslur
Lífeyrisgreiðslur í A og V deild fylgja breytingum á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar, sem hækkaði um 4,8% á árinu 2021. Lífeyrisgreiðslur í B deild fylgja breytingum á vísitölu lífeyrisskuldbindinga fyrir opinbera starfsmenn, sem hækkaði um 6,1% á árinu 2021.
Lífeyrisgreiðslur
Fjöldi lífeyrisþega
Það fjölgar ört í hópi lífeyrisþega hjá Brú. Á árinu 2021 fjölgaði lífeyrisþegum um 14,8% og voru 10.067 í árslok.
Meðalaldur
Meðalaldur lífeyrisþega eftir tegund lífeyris árið 2021.
Tegund lífeyris
Ellilífeyrir er greiddur til æviloka í öllum deildum.
Makalífeyri í A deild er greiddur til fimm ára eða þar til yngsta barn nær 22 ára aldri. Í V deild er makalífeyrir greiddur til tveggja ára eða þar til yngsta barn nær 18 ára aldri. Í B deild greiðist makalífeyrir ævilangt.
Barnalífeyri er greiddur uns barn verður 22 ára í A deild en 18 ára í V og B deild.
Örorkulífeyrir tekur mið af áunnum réttindum og miðast að lágmarki við 40% örorkumat í A deild, 50% örorkumat í V deild og 10% örorkumat í B deild.
Eftirlaun eru greidd til æviloka í öllum deildum
Fjöldi lífeyrisþega
Lífeyrisþegar sem fá greiddan ellilífeyri eru 64,8% af heildarfjölda lífeyrisþega og hefur hlutfallið haldist nokkuð óbreytt undanfarin ár.
Lífeyrisbyrði
Fylgst er með útstreymi greidds lífeyris og innstreymi iðgjalda með því að skoða hlutfall lífeyrisgreiðslna af iðgjöldum. Ef hlutfallið er minna en 100% þýðir það að meira innstreymi er af iðgjöldum til sjóðsins heldur en sjóðurinn greiðir út sem lífeyri, þ.e. nettó innstreymi fjármagns er til sjóðsins.
Fæðingarár lífeyrisþega
Brú
Grafið sýnir fjölda lífeyrisþega eftir fæðingarári og tegund lífeyris.