Kostnaður
Kostnaði sjóðsins er skipt í rekstrarkostnað og fjárfestingargjöld.
Rekstrarkostnaður er allur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður lífeyrissjóðsins.
Fjárfestingargjöld eru þóknanir til fjármálafyrirtækja og skiptast þær í beinar þóknanir, sem greiddar eru samkvæmt samningum eða gjaldskrá, og óbeinar þóknanir sem koma fram í gengismun í viðskiptum eða vaxtatekjum.
Rekstrarkostnaður var undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu
Kostnaður
Rekstrarkostnaður hækkaði um 5,3% á milli ára og reyndist undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu. Fjárfestingargjöld hækkuðu um 81,4% samhliða stefnu sjóðsins um aukið vægi fjárfestinga í erlendum verðbréfasjóðum.
Fjöldi stöðugilda
Síðastliðin fjögur ár hefur meðalfjöldi stöðugilda haldist nánast óbreyttur eftir fjölgun á milli áranna 2017 og 2018.
Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður
Lykilhlutföll
Oft er horft á rekstrarkostnað í hlutfalli við aðrar stærðir sjóðsins eins og iðgjöld og meðalstöðu hreinnar eignar.
Bein fjárfestingargjöld
Bein fjárfestingargjöld hækka um 3,3% á árinu einkum vegna hærri kaup- og söluþóknana.
Óbein fjárfestingargjöld
Óbein þóknun erlendra sjóða nánast tvöfaldast á milli ára í takt við stefnu sjóðsins um stækkun eignaflokksins.