Forsíða
3.9 Stærðir sjóðsins

Lán

Við veitum fasteignaveðtryggð lán til sjóðfélaga Brúar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar

Brú býður upp á fjölbreytt lán, til íbúðakaupa, viðhalds á húsnæði eða endurfjármögnunar. Sjóðurinn leggur sig fram um að vinna hratt og vel úr lánsumsóknum og hafa sjóðfélagar verið ánægðir með þá þjónustu.

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir lánum aukist til muna

Lyk­il­hlut­föll

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir lánum aukist til muna og telja þau í dag um 23% af skuldabréfaeign sjóðsins og 12% af hreinni eign, samanborið við 13% og 7% árið 2017.

Hlutfall af skuldabréfum
13%
23%
2017
2021
Hlutfall af hreinni eign
7%
12%
2017
2021

Sjóðfélagar eru afar skilvísir og eru 90 daga vanskil vart mælanleg sem hlutfall af hreinni eign til greiðslu lífeyris. Í ljósi heimsfaraldurs kórónuveiru veitti sjóðurinn tímabundin úrræði við innheimtu á greiðslum afborgana og vaxta. Lántakendur gátu sótt um frestun á greiðslum og að lánstíminn yrði lengdur að uppfylltum vissum skilyrðum tengdum greiðsluerfiðleikum vegna Covid-19.

Sjóðfélagar eru afar skilvísir

Verð­trygg­ing­ar­hlut­fall

Óverðtryggð lán hafa síðastliðin fjögur ár verið í kringum 35-40% af veðskuldabréfum sjóðsins.

Fast­eigna­veð

eft­ir stærstu sveit­ar­fé­lög­um árið 2021

Fasteignaveð á höfuðborgarsvæðinu eru 88,6% af heildarveðum sjóðsins.